English

Þóroddur Bjarnason

Prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands

Undanfarna áratugi hef ég stýrt rannsóknaverkefnum sem fjármögnuð hafa verið af ýmsum stofnunum og samkeppnissjóðum og birt fjölda bóka, bókarkafla, rannsóknagreina og efni almenns eðlis um byggðamál og byggðaþróun. Ég hef einnig tekið virkan þátt í opinberri stefnumótun á sviði byggðamála og byggðaþróunar á ýmsum vettvangi.

Rannsóknir mínar beinast einkum að drifkröftum byggðaþróunar, þar með talið orsökum og afleiðingum fólksflutninga, búsetuánægju og framtíðarfyrirætlana. Ég hef einnig rannsakað áhrif samgöngubóta á borð við jarðgöng og innanlandsflug á nærsamfélögin og áhrif fjarnáms og staðarnáms á menntunarstig einstakra svæða. Þá hef ég jafnframt tekið þátt í rannsóknum á áhrifum landfræðilegs hreyfanleika á umburðarlyndi einstaklinga, þar með talið kaþólskra lýðveldissinna og sambandssinna úr röðum mótmælenda á Norður-Írlandi. Ég tek nú þátt í undirbúningi rannsóknar á áhrifum gervigreindar og tengdrar tækni á byggðaþróun í Evrópu og Asíu.

Háskóli Íslands Starfsmannasíða við Háskóla Íslands: hi.is/staff/thoroddur

Menntun

Menntun
  • 2000Doktorspróf í félagsfræði, University of Notre Dame, Indiana, Bandaríkjunum
  • 1995Meistarapróf í gagnagreiningu félagsvísinda, University of Essex, Bretlandi
  • 1991BA próf í félagsfræði, Háskóla Íslands
Námsritgerðir
  • 2000Adolescent Substance Use: A Study in Durkheimian Sociology. Doktorsritgerð, University of Notre Dame.
  • 1995On the Structure and Effects of Family Integration and Parental Regulation Within the Framework of Durkheim's Social Theory: A Study of Youth. Meistaraprófsritgerð, University of Essex.
  • 1991Aflamunur og aflamenn: Tuttugustu aldar fiskveiðar í Norður-Atlantshafi. BA ritgerð, Háskóli Íslands.