English

Þóroddur Bjarnason

Prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands

Svæðisbundin áhrif háskóla
Rannsóknarverkefnið Svæðisbundin áhrif háskóla

Verkefninu var ætlað að meta áhrif íslenskra háskóla á byggðaþróun á Íslandi og kortleggja svæðisbundin áhrif þeirra utan höfuðborgarsvæðisins. Í því sambandi var bæði litið til þeirra háskóla og háskólasetra sem starfa utan Reykjavíkur og háskólanna í Reykjavík sem sinna nemendum um allt land með staðar- og fjarnámi. Veitt var yfirlit um þróun háskólanáms á Íslandi í samhengi við byggðaþróun og þróun íslensks skólakerfis frá lokum nítjándu aldar, upptökusvæði háskólanna voru kortlögð og metin áhrif þeirra á menntunarstig einstakra svæða.

Stjórnandi verkefnisins var Þóroddur Bjarnason og starfsmaður var Kolbrún Ósk Baldursdóttir. Aðrir þátttakendur voru:

Ritrýndar greinar verkefnisins
  • Þóroddur Bjarnason og Brynhildur Þórarinsdóttir. 2018. The effects of regional and distance education on the supply of qualified teachers in rural Iceland. Sociologia Ruralis, 58, 786–804. doi.org/10.1111/soru.12185
  • Þóroddur Bjarnason. 2018. Staðsetning háskóla og menntabil í háskólamenntun. Netla, 16(1). doi.org/10.24270/netla.2018.1
  • Þóroddur Bjarnason og Ingi Rúnar Eðvarðsson. 2017. University pathways of urban and rural migration in Iceland. Journal of Rural Studies, 54, 244–254. doi.org/10.1016/j.jrurstud.2017.07.001
  • Þóroddur Bjarnason, Ingi Rúnar Eðvarðsson, Ingólfur Arnarson, Skúli Skúlason og Kolbrún Ósk Baldursdóttir. 2016. Svæðisbundin áhrif íslenskra háskóla. Tímarit um uppeldi og menntun, 25, 265–287. ojs.hi.is
Aðrar greinar um Svæðisbundin áhrif háskóla
  • Í vinnslu.