Þóroddur Bjarnason
Prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
Rannsóknarverkefnið Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng
Árið 2006 var hafist handa við gerð jarðganga milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar um Héðinsfjörð, og sama ár sameinuðust Ólafsfjörður og Siglufjörður í sveitarfélagið Fjallabyggð. Ólafsfjörður og Siglufjörður höfðu um langt skeið þurft að glíma við hnignun í frumframleiðslu og umtalsverða fólksfækkun sem dregið hafði úr lífsgæðum á svæðinu. Vonast var til að með göngunum verði þessari þróun snúið við og er það ein meginröksemdin fyrir þeirri umtalsverðu fjárfestingu sem í þeim felst. Í mati á væntanlegum samfélagsáhrifum Héðinsfjarðarganga voru færð fyrir því rök að göngin myndu styrkja Eyjafjarðarsvæðið sem vaxtarsvæði og sem mótvægi gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Með göngunum yrði einnig til samfellt atvinnusvæði sem nái frá Akureyri til Siglufjarðar og hafi ríflega 20 þúsund íbúa. Það gæti meðal annars leitt til fjölbreyttari starfa og minna atvinnuleysis, hærri launa, lægra vöruverðs og fjölbreyttari verslunar og þjónustu, auk þess sem margvísleg ný tækifæri sköpuðust í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Til lengri tíma litið var gert ráð fyrir því að göngin myndu hafa margvísleg áhrif á samfélag, menningu og lífsstíl á norðanverðum Tröllaskaga.
Rannsóknarverkefninu Samgöngubætur og byggðaþróun: Félagsleg, efnahagsleg og menningarleg áhrif Héðinsfjarðarganga á mannlíf á norðanverðum Tröllaskaga sem styrkt var af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar var ætlað að leggja heildstætt mat á stöðu Fjallabyggðar og þær breytingar sem vænta má á samgöngumynstri, búsetuþróun, efnahagslífi, opinberri þjónustu og félagslegum auði í kjölfar opnunar ganganna. Jafnframt var verkefninu ætlað að styrkja fræðilegan grundvöll fyrir mat á samfélagslegum áhrifum jarðgangagerðar á landinu almennt.
Þóroddur Bjarnason, þá prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri (HA), stýrði verkefninu. Eftirtaldir sérfræðingar voru hluti rannsóknateymisins á verkefnistímanum 2009–2015:
- Edward Huijbens, dósent í landfræði og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
- Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði
- Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor í hagfræði
- Hjalti Jóhannesson, landfræðingur
- Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði
- Kolbeinn Stefánsson
- Sonja Stelly Gústafsdóttir
- Sigríður Halldórsdóttir
- Kristjana Fenger
- Vífill Karlsson, lektor í hagfræði
- Þóra Kristín Þórsdóttir, aðjúnkt í aðferðafræði
Bókin Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng (2011)
- Samgöngubætur og byggðaþróun á norðanverðum Tröllaskaga — Þóroddur Bjarnason og Kolbeinn Stefánsson. Bls. 4
- I. HLUTI: SAMGÖNGUR
- Umferð á norðanverðum Tröllaskaga: Erindi og áfangastaðir vegfarenda — Jón Þorvaldur Heiðarsson, Kjartan Ólafsson, Sveinn Arnarsson og Þóroddur Bjarnason. Bls. 16
- Umferðarspá fyrir Héðinsfjarðargöng — Jón Þorvaldur Heiðarsson. Bls. 30
- Ferðamenn í Fjallabyggð sumarið 2009 — Edward Huijbens. Bls. 38
- II. HLUTI: BÚSETA OG BÚSETUÞRÓUN
- Búsetuþróun í Fjallabyggð 1929–2009 — Þóroddur Bjarnason, Kjartan Ólafsson og Kolbeinn H. Stefánsson. Bls. 50
- Föst búseta og hlutabúseta í Fjallabyggð — Kjartan Ólafsson og Þóroddur Bjarnason. Bls. 58
- Búsetufyrirætlanir íbúa Fjallabyggðar — Þóroddur Bjarnason. Bls. 65
- III. HLUTI: EFNAHAGSLÍF Í FJALLABYGGÐ
- Atvinnulíf og samgöngur í Fjallabyggð — Kolbeinn H. Stefánsson. Bls. 72
- Áhrif samgöngubóta á fasteignamarkað sérstaklega afskekktra byggðarlaga — Vífill Karlsson. Bls. 82
- Viðhald samfélags? Hlutverk frístundahúsaeigenda í samfélögum á jaðarsvæðum — Edward H. Huijbens. Bls. 93
- Áhrif hagsveiflna á atvinnustig afskekktra landsvæða á Íslandi — Vífill Karlsson. Bls. 106
- IV. HLUTI: STJÓRNSÝSLA OG OPINBER ÞJÓNUSTA
- Sveitarfélagið Fjallabyggð og Héðinsfjarðargöng — Grétar Þór Eyþórsson. Bls. 116
- Starfsemi ríkis og sveitarfélags í Fjallabyggð — Grétar Þór Eyþórsson, Arnbjörg Pétursdóttir og Martha Elena Laxdal. Bls. 125
- Heilbrigðisþjónusta í Fjallabyggð — Sonja Stelly Gústafsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir og Kristjana Fenger. Bls. 133
- Skólamál í Fjallabyggð — Grétar Þór Eyþórsson. Bls. 147
- V. HLUTI: SAMFÉLÖGIN Í FJALLABYGGÐ
- Félagslegur auður Fjallabyggðar — Kolbeinn H. Stefánsson og Sveinn Arnarsson. Bls. 152
- Kynferði og samgöngubætur — Þóra Kristín Þórsdóttir og Kjartan Ólafsson. Bls. 161
- Nokkur orð um mikilvægi þess að fá að sofa heima hjá sér — Björn Þorláksson. Bls. 170
Ritrýndar greinar
- Sérhefti um verkefnið: Íslenska þjóðfélagið – sérhefti um Fjallabyggð og Héðinsfjarðargöng
- Þóroddur Bjarnason. 2021. Tunnelling the Peninsula of Trolls: A case study of road infrastructure improvement and demographic dynamics in Northern Iceland. European Countryside, 13(2), 368–387. doi.org/10.2478/euco-2021-0023
- Sonja Stelly Gústafsdóttir, Kristjana Fenger Sigríður Halldórsdóttir og Þóroddur Bjarnason. 2017. Social justice, access and quality of healthcare in an age of austerity: Users' perspective from rural Iceland. International Journal of Circumpolar Health, 76:1. doi.org/10.1080/22423982.2017.1347476
- Þóroddur Bjarnason. 2015. Samgöngur og byggðaþróun: Samfélagsleg áhrif Héðinsfjarðarganga. Íslenska þjóðfélagið, 6, 5–36.
- Sonja Stelly Gústafsdóttir, Kristjana Fenger, Sigríður Halldórsdóttir og Þóroddur Bjarnason. 2015. Heilbrigðisþjónusta Fjallabyggðar: Viðhorf íbúa í kjölfar mikilla samfélagsbreytinga. Íslenska þjóðfélagið, 6, 37–51.
- Þóroddur Bjarnason. 2014. The effects of road infrastructure improvement on work travel in Northern Iceland. Journal of Transport Geography, 41, 229–238. doi.org/10.1016/j.jtrangeo.2014.09.009
- Þóroddur Bjarnason og Edward H. Huibens. 2014. Stefna íslenskra stjórnvalda og vöxtur ferðaþjónustu á jaðarsvæðum: Áhrif Héðinsfjarðarganga í Fjallabyggð. Stjórnmál og stjórnsýsla, 10, 567–581. doi.org/10.13177/irpa.a.2014.10.2.18
- Þóroddur Bjarnason og Kjartan Ólafsson. 2014. Skammtímaáhrif Héðinsfjarðarganga á mannfjöldaþróun í Fjallabyggð. Íslenska þjóðfélagið, 5, 25–48.
- Edward H. Huijbens. 2012. “Sustaining a Village’s Social Fabric?” Sociologia Ruralis, 52(3), 332–352. doi.org/10.1111/j.1467-9523.2012.00565.x
Aðrar rannsóknir á samgöngum og byggðaþróun
- Þóroddur Bjarnason, Jón Þorvaldur Heiðarsson, Guðný Rós Jónsdóttir. 2023. „Beint flug er næs“: Svæðisbundin áhrif millilandaflugs frá Akureyri. Íslenska þjóðfélagið, 14, 87–106.
- Þóroddur Bjarnason og Sigríður Elín Þórðardóttir. 2018. Vinnusókn til höfuðborgarsvæðisins frá öðrum byggðarlögum á Suðvesturlandi. Tímarit um viðskipti og efnahagsmál, 15(2), 97–114. doi.org/10.24122/tve.a.2018.15.2.6
- Þóroddur Bjarnason og Sveinn Arnarsson. 2012. Slys á hættulegustu vegum landsins. Læknablaðið, 98, 103–108. doi.org/10.17992/lbl.2012.02.416